21. nóvember 2010

Nóvemberfundur

Það var augljóst að konur voru komnar í jólagrírinn. Nokkrar komu nýjar úr þjónustuverinu og voru þær að föndra ljósaseríur, mjög fallegar, ekki náðust þær á mynd því miður.
Mjög góð mæting var að venju, þrátt fyrir að skvísukvöld væri á Lynghálsinum og mættu þær að sjálfsögðu á báða staðina.

Næst verður jólafundur 16.des. og ætlum við að hafa eitthvað góðgæti á fundinum, hafið með ykkur eitthvað klink til að setja í baukinn til að borga kokkinum.